17/06/2016 European Challenge Tour 2016, Najeti Open, Aa Saint-Omer GC, Lumbers, France. 16-19 Jun. Birgir Hafthorsson of Iceland during the second round.
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 16. 2018 | 21:00

Evróputúrinn: Birgir Leifur T-16 e. 1. dag Nordea Masters

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, tekur þátt í móti vikunnar á Evróputúrnum, Nordea Masters.

Mótið fer fram á keppnisvelli Hills golfklúbbsins í Gautaborg, Svíþjóð.

Birgir Leifur lék 1. hring á glæsilegum 3 undir pari, 67 höggum, fékk 4 fugla og 1 skolla.

Hann er T-16 eftir 1. dag þ.e. deilir 16. sætinu ásamt 12 öðrum kylfingum þ.á.m. þekktum s.s. Martin Kaymer og Robert Karlsson.

Efstur eftir 1. dag er Frakkinn Clément Sordet, en hann lék 1. hring á 8 undir pari, 62 höggum.

Sjá má stöðuna á Nordea Masters með því að SMELLA HÉR: