Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 14. 2018 | 13:00

Koepka fékk hamingjuóskatvít frá Trump

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sendi Brooks Koepka hamingjuóskaskeyti eftir að sá síðarnefndi vann 3. risatitil sinn sl. sunnudag þ.e. PGA Championship.

Í skeytinu stóð:

„Brooks Koepka just won his third Golf Major and he did it not only with his powerful game but with his powerful mind. He has been a man of steel on the Tour and will have many Victories, including Majors ahead of him. Congrats to Brooks and his Team on a job well done.“

(Lausleg þýðing: Brooks Koepka vann rétt í þessu 3. risamót sitt og hann gerði það ekki aðeins með kraftmiklum leik sinum heldur og með kraftmiklum huga sínum. Hann hefir verið Járnmaður á Túrnum og á framundan marga Sigra þ.á.m. sigra á risamótum. Hamingjuóskir til Brooks og liðs hans fyrir vel unnið starf.“)