Axel og Birgir Leifur tóku silfrið á EM í liðakeppni atvinnukylfinga
Birgir Leifur Hafþórsson og Íslandsmeistarinn í höggleik 2018 Axel Bóasson enduðu í öðru sæti á EM í liðakeppni atvinnukylfinga. Þeir töpuðu naumlega 2/0 í úrslitaleiknum gegn Spánverjunum Pedro Oriol og Scott Fernandez. Úrslitaleikurinn var spennandi og náðu íslensku leikmennirnir að búa til hörkuspennu á lokakaflanum þrátt fyrir að vera 3 holur niður þegar þrjár holur voru eftir.
Birgir Leifur og Axel fengu um 6,4 milljónir kr. hvor í sinn hlut í verðlaunafé en Evrópumeistararnir fengu um 12,8 milljónir kr. hvor í sinn hlut.
Birgir og Axel lögðu spænskt lið 2/1 í morgun í undanúrslitum.
Birgir og Axel lönduðu þar með öðrum verðlaunum sínum á þessu móti. Í gær fögnuðu þeir Evrópumeistaratitlinum í keppni blandaðra liða með Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur og Valdísi Þóru Jónsdóttur.
Það var að miklu að keppa á EM því sigurliðið skipti á milli sín rúmlega 25,6 milljónum kr.
Verðlaunaféð í liðakeppni karla á EM atvinnukylfinga.
1. sæti = 100.000 Evrur á leikmann = 12,8 milljónir kr.
2. sæti = 50.000 Evrur á leikmann = 6,4 milljónir kr.
3. sæti = 30.000 Evrur á leikmann = 3,85 milljónir kr.
4. sæti = 15.000 Evrur á leikmann = 1,92 milljónir kr.
Evrópumótið í liðakeppni atvinnukylfinga fór fram á Gleneagles vellinum í Skotlandi dagana 8.-12. ágúst og lauk í dag.
Alls voru 16 þjóðir sem tóku þátt og var hvert lið skipað tveimur leikmönnum.
Axel Bóasson (GK) og Birgir Leifur Hafþórsson (GKG) voru saman í liði. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR) og Valdís Þóra Jónsdóttir (GL) voru saman í liði. Og í lokaumferðinni voru liðin skipuð einum karli og einni konu.
Birgir Leifur og Axel unnu allar þrjár viðureignir sínar og léku þeir í undanúrslitum mótsins. Þeir léku um laust sæti í undanúrslitum mótsins gegn Noregi í lokaumferðinni og þar höfðu þeir betur. Birgir og Axel lögðu Belgíu og Ítalíu í fyrstu tveimur umferðunum.
Valdís Þóra og Ólafía Þórunn gerðu jafntefli gegn Austurríki í lokaumferðinn og stóðu uppi með tvö jafntefli og einn tapleik.
Þær fengu þrjá fugla í röð á síðustu þremur holunum í viðureign þeirra gegn Finnlandi í 2. umferð. Íslensku atvinnukylfingarnir náðu að jafna við Finnland og lönduðu 1/2 vinningi. Valdís og Ólafía töpuðu fyrsta leiknum í riðlakeppninni.
Sjá nánar um mótið með því að SMELLA HÉR:
Texti og mynd: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
