Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2018 | 23:00

PGA: Gary Woodland efstur á PGA Championship – Hápunktar 1. dags

Það er Gary Woodland, sem er í forystu eftir 1. dag PGA Championship, 4. og síðasta risamóti ársins.

Woodland lék 1. hring á 6 undir pari, 64 höggum.

Í 2. sæti er Rickie Fowler, 1 höggi á eftir, en hann lék á 5 undir pari, 65 höggum.

Þriðja sætinu deila síðan Brandon Stone og Zach Johnson, á 4 undir pari, 66 höggum.

Tiger Woods er meðal keppenda og lék hann 1. hring á sléttu pari, 70 höggum og er T-48 ásamt 13 öðrum frábærum kylfingum, þ.á.m. Rory McIlroy, Sergio Garcia, Adam Scott, Bubba Watson og Thorbjörn Olesen.

Til þess að sjá hápunkta 1. dags PGA Championship SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á PGA Championship SMELLIÐ HÉR: