Guðrún Brá og Berglind
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 10. 2018 | 10:00

LET Access: Guðrún Brá T-40 e. 1. dag Anna Nordqvist Västerås Open

Berglind Björnsdóttir, GR, og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, léku í gær 1. hring á móti vikunnar á LET Access mótaröðinni, Anna Nordqvist Västerås Open.

Guðrún Brá lék á 3 yfir pari, 75 höggum og er T-40. Efstu 45 og þær sem jafnar eru í 45. sæti komast í gegnum niðurskurð.  Berglind er því miður fyrir neðan niðurskurðarlínu eftir 1. dag er T-114 en hún lék á 12 yfir pari, 81 höggi.

Mótinu lýkur á laugardaginn. Eftir 2. hring í dag verður skorið niður.

Báðar hafa þær Berglind og Guðrún leikið á LET Access mótaröðinni á tímabilinu, en betur hefur gengið hjá Guðrúnu Brá, sem er í 69. sæti stigalistans. Berglind á enn eftir að fá stig.

Fylgjast má með gengi íslensku keppendanna með því að SMELLA HÉR: