Ragga Sig sigraði í Einvíginu á Nesinu
Einvígið á Nesinu (Shoot out) góðgerðarmótið fór fram á Nesvellinum í sólríku en nokkuð vindasömu veðri í dag.
Þetta var í 22. skiptið sem mótið var haldið og eins og ávallt var það haldið til styrktar góðu málefni tengt börnum, nú Barnaspítala Hringsins.
Sigurvegari mótsins var klúbbmeistari GR 2018 og svo mörg undanfarin ár, Ragnhildur Sigurðardóttir eftir æsispennandi spil á lokaholunni þar sem hún atti kappi við Alfreð Brynjar Kristinsson.
Að móti loknu var verðlaunaafhending og keppendum afhendur þakklætisvottur fyrir sitt framlag til málefnisins.
Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og Kristinn Ólafsson formaður Neskúbbsins afhenti að lokum Þránni Rósmundssyni frá Barnaspítala Hringsins ávísun frá Nesklúbbnum að upphæð 500.000 krónur.
Úrslit í einvíginu urðu eftirfarandi:
1. sæti – Ragnhildur Sigurðardóttir, GR
2. sæti – Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG
3. sæti – Rúnar Arnórsson, GK
4. sæti – Björn Óskar Guðjónsson, GM
5. sæti – Ólafur Björn Loftsson, NK
6. sæti – Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
7. sæti – Kristján Þór Einarsson, GM
8. sæti – Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, GS
9. sæti – Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
10. sæti – Björgvin Sigurbergsson, GK
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
