Áskorendamótaröð Evrópu: Axel og Birgir Leifur komust ekki g. niðurskurð!
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG og Axel Bóasson nýkrýndur Íslandsmeistari í höggleik úr Keili, léku á Áskorendamótaröðinni. Mótið fer fram á Katrineholms vellinum í Svíþjóð og er hinn þekkti atvinnukylfingur Robert Karlsson gestgjafi mótsins.
Niðurskurður var miðaður við samtals 2 undir pari eða betra.
Birgir Leifur lék á 74-69 og var á -1 samtals. Hann var því einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.
Axel lék á 73-72 og var á +1 samtals. Hann var því þremur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.
Sjá má stöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR:
Þetta var áttunda mótið á Áskorendamótaröðinni hjá Birgi á keppnistímabilinu. Hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn á tveimur þeirra. Besti árangur hans er 7. sæti á móti í Tékklandi á þessu ári.
Axel var að taka þátt á sínu 13. móti á þessari mótaröð sem er næst sterkasta mótaröð Evrópu. Hann hefur náð 45. sæti á einu móti en á hinum mótunum hefur Axel ekki komist í gegnum niðurskurðinn.
Texti og mynd: GSÍ
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
