Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 2. 2018 | 23:00

LPGA: Lee leiðir á Opna breska

Það er ástralski kylfingurinn Minjee Lee, sem leiðir á Opna breska kvenrisamótinu, sem fram fer í Lancashire.

Lee lék 1. hring á glæsilegum 7 undir pari, 65 höggum.

Í 2. sæti er japanska stúlkan Mamiko Higa, sem er 2 höggum á eftir á 5 undir pari, 67 höggum.

Fimm kylfingar deila síðan 3. sætinu þ.á.m. enski kylfingurinn Georgia Hall, sem er til alls líklega.

Íslenski atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir er meðal keppenda og er T-61 eftir 1. hring, s.s. áður er komið fram hér á Golf1.is

Til þess að sjá stöðuna á Opna breska SMELLIÐ HÉR: