PGA: Tiger í góðu formi en ekkert ánægður m/1. hring á Bridgestone!
Tiger Woods var á 4 undir pari, 66 höggum á 1. hring WGC Bridgestone, í Akron.
Hann var með hreint kort (þ.e. skollalaust) þar til hann fékk skolla á síðustu.
Tiger hitti aðeins 1 braut af síðustu 9 á hring sínum, hann setti ekki niður fugla í fuglafærum, sem hann hefði aldrei látið ónýtt á hátindi ferils síns og slátturinn var bara miðlungs …. en hann lék samt sem áður á 66! … og það á velli sem hann hefir ekki spilað á frá árinu 2014.
Hann kom jafnvel ekki til Akron fyrr en á miðvikudagsmorgni og hafði því ótrúlega lítinn tíma til æfinga, eftir frí sem hann tók sér í Sviss eftir glæsilegan T-6 árangur á Opna breska fyrir 2 vikum. Hann lék 9 holu æfingahring á fyrri 9 þegar hann loks kom og var á 3 undir pari, 32 höggum.
Tiger hefir sigrað 8 sinnum á Bridgestone.
„Ég þurfti ekkert að spá í púttin,“ sagði Joe LaCava, kylfusveinn Tiger. „Hann veit hvað hann er að gera hér. Ég þarf ekkert að gera. Líklega bara að vera ekki fyrir.“
„Það er næs að eiga hringi eins og ég átti á Opna breska og eins og ég átti í dag, og setja saman hringi þar sem ég er ekki upp á mitt besta en skorið er í lagi,“ sagði Tiger að loknum hringnum. „Þannig vinnur maður mót.“
„Að minnsta kosti er ég ekki eins langt fyrir aftan forystuna núna,“ sagði Tiger, sem finnst hann ekki upp á sitt besta enn.
La Cava, kylfusveinn Tiger er á sama máli: „Ég held að slátturinn sé ekki enn á sínum stað. [En] hann átti góðan hring, náði að setja niður nokkur pútt og slá nokkuð góð högg með wedge…„
Þetta er allt á réttri leið …
Tiger átti t.a.m. högg dagsins, sem sjá má með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
