Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 2. 2018 | 20:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Axel á 73 og Birgir á 74 e. 1. dag í Svíþjóð

Nýkrýndur Íslandsmeistari í höggleik 2018 Axel Bóasson, GK og Birgir Leifur Hafþórsson, GKG taka þátt í móti vikunar á Áskorendamótaröð Evrópu, Swedish Challenge.

Mótsstaður er Katrineholms GK í Jättorp í Katrineholm, Svíþjóð.

Axel lék 1. hring á 1 yfir pari, 73 höggum og er í hópi 23 kylfinga, sem deila 98. sætinu í mótinu.

Birgir Leifur lék á 2 yfir pari, 74 höggum og er í hópi 10 kylfinga í 121. sæti mótsins.

Báðir verða að gefa í til þess að ná niðurskurði!!!

Í efsta sæti eftir 1. dag er spænski kylfingurinn Adri Arnaus, en hann lék á 8 undir pari, 64 höggum.

Sjá má stöðuna á Swedish Challenge með því að SMELLA HÉR: