Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 2. 2018 | 12:00

Nordic Golf League: Allir 3 Íslendingarnir fóru g. niðurskurð í Esbjerg! – Guðmundur Ágúst bestur af þeim!

Allir 3 íslensku kylfingarnir sem þátt taka í úrtökumótinu fyrir Made in Denmark mótið á Evróputúrnum komust í gegnum niðurskurð.

Af Íslendingunum er Guðmundur Ágúst búinn að standa sig best er T-4, þ.e. jafn tveimur öðrum keppendum í 4. sæti, en hann er búinn að spila hringina tvo á samtals 3 undir pari, 139 höggum (72 67). Guðmundur Ágúst átti stórglæsilegan hring upp á  4 undir pari í dag, 67 högg; hring þar sem skilaði „hreinu“ skorkorti með 4 fuglum og 14 pörum. Stórglæsilegt!!!

Andri Þór er T-10, hefir spilað á samtals 1 undir pari, 141 höggi (71 70). Alltaf jafn glæsilegur!!!

Haraldur Franklín er síðan T-54, bætti leik sinn um 4 högg frá deginum áður og er á samtals 6 yfir pari, 148 höggum (76 72). Flott hjá Haraldi Franklín!!!

Allir íslensku kylfingarnir komust gegnum niðurskurð, sem miðaðist við efstu 45 + þá sem jafnir voru í 45. sæti að frátöldum áhugamönnum. Þetta varð til þess að Haraldur Franklín rétt slapp gegnum niðurskurð!

Í efsta sæti er danski kylfingurinn Martin Leth Simonsen, úr Hobro golfklúbbnum, en hann hefir spilað hringina tvo á samtals 8 undir pari, 134 höggum (68 66) og í 2. sæti er landi hans Nicolai Tinning, úr Søllerød golfklúbbnum,  á samtals 5 undir pari, 137 höggum (68 69).

Sjá má stöðuna á Made in Denmark úrtökumótinu með því að SMELLA HÉR: