Rose ekki með á WGC Bridgestone
Enski kylfingurinn Justin Rose hefir dregið sig úr Bridgestone heimsmótinu.
Ástæðan eru bakmeiðsl eða svokallaðir skyndilegir og ósjálfráðir vöðvasamdrættir (spasms) í baki.
Nr. 2 á heimslistanum (Rose) er annar kylfingurinn til þess að draga sig úr Bridgestone heimsmótinu, því áður var kanadíski kylfingurinn Adam Hadwin búinn að draga sig úr mótinu vegna mjaðmameiðsla.
Rose var talinn meðal líklegra sigurvegara á WGC-Bridgestone Invitational, en hann varð í 2. sæti á Opna breska, sem fram fór í ár s.s. flestir vita á Carnoustie linksaranum í Skotlandi og eins hefir Rose verið 5 sinnum meðal efstu 5 á Bridgestone mótinu í Akron, á ferli sínum.
Rose hefir átt í vandræðum með bakið á sig og missti m.a. 3 mánuði árið 2016 vegna samskonar meiðsla. Góðu fréttirnar eru hins vegar að hann verður ekki lengi frá keppni, búist er við að hann verði með á síðasta risamóti ársins, PGA Championship.
Á síðasta keppnistímabili hefir hinn 37 ára Rose náð einum besta árangri á ferli sínum; hefir sigrað í 4 mótum og 19 sinnum verið meðal efstu 10.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
