Andri Þór Björnsson, GR.
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 1. 2018 | 18:00

Nordic Golf League: Andri Þór bestur af íslensku kylfingunum e. 1. dag í Esbjerg

Atvinnukylfingarnir úr GR Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús  hófu leik í dag á Made in Denmark Qualifier – by EnergiMetropol Esbjerg.

Mótið er úrtökumót fyrir Made in Denmark mótið, sem er hluti af Evróputúrnum.

Það fer fram á velli Esbjerg Golfklub.

Andri Þór lék best íslensku keppendanna var á sléttu pari, 71 höggi á hring þar sem hann fékk 4 fugla, 2 skolla og 1 örn. Hann er T-17 eftir 1. dag þ.e. deilir 17. sætinu með öðrum kylfingum.

Næstbest lék Guðmundur Ágúst en hann kom í hús á 1 yfir pari, 72 höggum og er T-32.

Haraldur Franklín átti ekki sinn besta dag en hann lék 1. hring á 76 höggum og er fyrir neðan niðurskurðarlínu eins og er og verður að eiga feykigóðan hring á morgun, 2. ágúst 2018.

Sjá má stöðuna á  Made in Denmark úrtökumótinu með því að SMELLA HÉR: