Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 30. 2018 | 19:00

LET & LPGA: Ariya sigraði í Skotlandi!!!

Það var thaílenski kylfingurinn Ariya Jutanugarn, sem bar sigur úr býtum á Opna skoska kvennamótinu, eða m.ö.o. Aberdeen Standard Investments Ladies Scotish Open.

Ariya lék á samtals 13 undir pari, 271 höggi (67 – 65 – 73 – 66).

Aðeins 1 höggi á eftir varð ástralski kylfingurinn Minjee Lee.

Ólafía Þórunn og Valdís Þórunn tóku þátt í mótinu, en náðu því miður ekki niðurskurði.

Til þess að sjá lokastöðuna á Opna skoska kvennamótinu SMELLIÐ HÉR: