Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 30. 2018 | 10:00

Evróputúrinn: Birgir Leifur varð T-48 á Porsche European Open

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lauk keppni á Porsche European Open mótinu T-48.

Hann lék samtals á sléttu pari 288 höggum (72 70 75 71) og lauk keppni eins og segir T-48 þ.e. deildi 48. sætinu með 5 öðrum kylfingum.

Fyrir árangur sinn í mótinu hlaut Birgir Leifur € 9,200 (sem er eitthvað um ISK 1.120.000,-) Glæsilegt hjá Birgi Leif!!!

Sigurvegari í mótinu varð enski kylfingurinn Richard McEvoy, en hann lék á 11 undir pari, 277 höggum.

Sjá má hápunkta 4. hrings á Porsche European Open með því að SMELLA HÉR: 

Til þess að sjá lokastöðuna í mótinu SMELLIÐ HÉR: