Haraldur Franklín Magnús, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2018 | 20:00

Eimskipsmótaröðin 2018 (7): Axel efstur – Haraldur Franklín og Anna Sólveig m/vallarmet – Guðrún Brá og Anna Sólveig jafnar í hálfleik

Þrír kylfingar úr Golfklúbbnum Keili eru efstir þegar Íslandsmótið í höggleik er hálfnað í Vestmannaeyjum; Axel Bóasson í karlaflokki og Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Anna Sólveig Snorradóttir eru jafnar í kvennaflokki.

Axel Bóasson, GK. Mynd: Golf 1.

Axel Bóasson, GK. Mynd: Golf 1.

Keppendur sýndu glæsileg tilþrif á 2. degi Íslandsmótsins.

Í karlaflokki sló Haraldur Franklín Magnús 16 ára vallarmet Helga Dan Steinssonar, þ.e. bætti það um 1 högg, lék á 8 undir pari, 62 glæsihöggum.

Á hringnum fékk Haraldur Franklín 8 fugla og 10 pör. Fuglarnir komu á 3., 4., 6. og 8. braut á fyrri 9 og á 10. 15. 16 og 18. braut á seinni 9.

Með þessu glæsiskori saxaði Haraldur Franklín á forskot Axels og er munurinn milli þeirra aðeins 2 högg en var 7 högg eftir fyrsta keppnisdag – þar sem Axel var í forystu á 65 höggum en Haraldur byrjaði á 2 yfir pari, 72 höggum og kom sér þannig í 2. sætið, en var fyrir hringinn ekki meðal efstu 12.

Staðan í karlaflokki er eftirfarandi eftir 2. dag Íslandsmótsins (aðeins taldir þeir sem léku hringina tvo samtals undir pari):

1 Axel Bóasson GK -5 F 34 33 67 -3 65 67 132 -8
2 Haraldur Franklín Magnús GR -5 F 31 31 62 -8 72 62 134 -6
3 Andri Már Óskarsson GHR -2 F 32 35 67 -3 68 67 135 -5
4 Björn Óskar Guðjónsson GM -3 F 36 33 69 -1 66 69 135 -5
5 Gísli Sveinbergsson GK -4 F 34 33 67 -3 69 67 136 -4
6 Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR -5 F 33 35 68 -2 70 68 138 -2
7 Stefán Þór Bogason GR -2 F 35 33 68 -2 70 68 138 -2
8 Jóhannes Guðmundsson GR 0 F 33 33 66 -4 72 66 138 -2
9 Fannar Ingi Steingrímsson GHG -4 F 32 36 68 -2 70 68 138 -2
10 Henning Darri Þórðarson GK -2 F 36 35 71 1 68 71 139 -1
11 Arnór Ingi Finnbjörnsson GR -1 F 37 35 72 2 67 72 139 -1
12 Lárus Garðar Long GV 1 F 38 31 69 -1 70 69 139 -1
13 Kristófer Orri Þórðarson GKG -2 F 32 34 66 -4 73 66 139 -1
14 Kristján Þór Einarsson GM -4 F 35 34 69 -1 70 69 139 -1


Anna Sólveig og Guðrún Brá. Mynd: GSÍ.

Í kvennaflokki er Anna Sólveig Snorradóttir úr GK búin að jafna við Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, GK og eru því 3 Keilismenn á toppnum.

Báðar hafa þær Guðrún Brá og Anna Sólveig spilað á samtals 5 yfir pari; Guðrún Brá (70 75) en Anna Sólveig (80 65).

Anna Sólveig bætti vallarmetið á Vestmannaeyjavelli, lék 2. hringinn á stórglæsilegum 5 undir pari, 65 höggum af bláum teigum.  Á hringnum fékk hún 9 fugla og 4 skolla.

Fuglar Önnu Sólveigar komu á 1., 3., 4. og 5., 8. og 9. braut (og skollinn á 2. braut) á fyrri 9. Síðan komu 3 fuglar á seinni 9 á 11., 16 og 18. braut en skollarnir á 13., 15. og 17. braut.

Sjá má stöðuna í kvennaflokki eftir 2. keppnisdag á Íslandsmótinu hér fyrir neðan:

1 Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK -1 F 39 36 75 5 70 75 145 5
1 Anna Sólveig Snorradóttir GK 4 F 30 35 65 -5 80 65 145 5
3 Helga Kristín Einarsdóttir GK 3 F 37 36 73 3 73 73 146 6
4 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 1 F 37 33 70 0 78 70 148 8
5 Saga Traustadóttir GR 2 F 37 39 76 6 72 76 148 8