Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2018 | 18:00

LET & LPGA: Ólafía og Valdís úr leik

Atvinnukylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL tóku þátt í sameiginlegu móti LET og LPGA; Aberdeen Standard Investments Ladies Scottish Open eða Opna skoska kvennamótinu.

Þær eru báðar úr leik.

Valdís Þóra lék á samtals 3 yfir pari 145 höggum (74 71) og varð T-95 þ.e. jöfn 7 öðrum í 95. sæti.

Ólafía Þórunn lék á samtals 5 yfir pari, 147 höggum (77 70) og varð T-114 þ.e. jöfn 11 öðrum í 114. sæti af 156 keppendum.  Aðrir, sem spiluðu á 5 yfir eins og Ólafía voru m.a. Michelle Wie og 3 yfir eins og Valdís Þóra, Lydia Ko, fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna.

Efst eftir 2. dag er bandaríski kylfingurinn Tiffany Joh, sem spilað hefir á samtals 13 undir pari, 129 höggum (62 67).

Sjá má stöðuna á Opna skoska í kvennagolfinu SMELLIÐ HÉR: