Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2018 | 19:00

Landslið Íslands á HM í Írlandi

Jussi Pitkänen, afreksstjóri Golfsambands Íslands, hefur valið landslið Íslands sem keppa á heimsmeistaramóti áhugamanna í lok ágúst og byrjun september.

Heimsmeistaramótið fer fram á Carton House, Maynooth, rétt við Dublin á Írlandi. Keppnisvellirnir heita Montgomerie og O’Meara.

HM kvenna eða Espirito Santo Trophy, hefst 29. ágúst og stendur til 1. september.

Landslið Íslands verður þannig skipað:
Helga Kristín Einarsdóttir (GK), Ragnhildur Kristinsdóttir (GR), og Saga Traustadóttir (GR).

HM karla eða Eisenhower Trophy, hefst 5. september og stendur til 8. september.

Landslið Íslands verður þannig skipað:
Aron Snær Júlíusson (GKG), Bjarki Pétursson (GB), Gísli Sveinbergsson (GK).