Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2018 | 20:00

Eimskipsmótaröðin 2018 (7): Til keppenda á Íslandsmótinu – Þórsvöllur opinn

Æfingasvæði við Þórsvöll (samhliða 10. braut) er opið frá kl. 06:30 þar til síðasti ráshópur hefur farið út alla keppnisdagana.

Efra æfingasvæði við golfskála er opið frá kl. 06:30 þar til kl. 09:30.

Neðra æfingasvæði/æfingaskýli er heimilt að nota fyrir styttri högg alla keppnisdaga. Keppendur eru beðnir um að slá ekki inná 13. braut af neðra svæði.

Keppendur er beðnir um að virða það að slá ekki lengri högg af æfingasvæði við golfskála en 140 metra. Ef keppendur verða uppvísir af því að slá bolta út af æfingasvæði er áskilinn réttur að beita viðurlögum.

Sjá má upplýsingar fyrir keppendur á fésbókarsíðunni golfeyjar með því að SMELLA HÉR: 

Aðalfréttagluggi: Fallegt á Vestmannaeyjavelli. Mynd: Unnur