Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 25. 2018 | 07:00

Valdís Þóra komst inn á risamót – keppir á Opna breska á Royal Lytham & St Annes

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, hefur tryggt sér sæti á Opna breska meistaramótinu. Mótið fer fram á Royal Lytham & St Annes Golf Club á Englandi 2.- 5. ágúst.

Mótið er eitt af fimm risamótum hvers árs hjá atvinnukylfingum í kvennaflokki. Valdís Þóra hefur leikið á einu risamóti á ferlinum, Opna bandaríska meistaramótinu, sem fram fór í fyrra.

Valdís Þóra verður þar með annar íslenski kylfingurinn sem tekur þátt á Opna breska meistaramótinu í kvennaflokki.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, tryggði sér keppnisrétt á Opna breska meistaramótinu í fyrra með því að enda í einu af 10 efstu sætunum á Opna skoska meistaramótinu sem fram fór í vikunni þar á undan.

Valdís Þóra Jónsdóttir og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir eru báðar á meðal keppenda á Opna skoska meistaramótinu sem hefst fimmtudaginn, 26. júlí. Leiknar verða 72 holur á fjórum keppnisdögum.

Mótið er hluti af LPGA mótaröðinni í Bandaríkjunum og LET Evrópumótaröðinni.

Valdís og Ólafía keppa á Gullane vellinum skammt frá Edinborg.