Solheim Cup 2019: Matthew útnefnir varafyrirliða sína
Fyrirlið lið Evrópu í European Solheim Cup Catriona Matthew hefir útnefnt Suzann Pettersen og Kathryn Imrie sem varafyrirliða sína í Solheim Cup 2019, sem fram fer í september á næsta ári á velli Gleneagles hótelsins í Perthshire, Skotlandi.
Báðir varafyrirliðarnir eru hlaðnir reynslu og ástríðukylfingar og koma með reynslu úr 18 Solheim Cup mótum sem þær hafa ýmist verið leikmenn eða varafyrirliðar.
Í ávarpi fyrir the Aberdeen Standard Investments Ladies Scottish Open, sagði Matthew, sem í Skotlandi er betur þekkt undir gælunafni sínu „Beany“: „Ég er ánægð að hafa Kathryn og Suzann við hlið mér í The Solheim Cup á Gleneagles. Þær búa báðar yfir yfirgripsmikilli reynslu og munu verða verðmætar næst 14 mánuði þegar við gerum allt sem við getum til þess að ná Solheim bikarnum heim til Evrópu.“
Pettersen hefir spilað í 8 Solheim Cup mótum sem leikmaður og þar af í 3 sigurliðum – og hefir náð á ferli sínum að vinna 19 stig í 14 leikjum. Hin 37 ára norska frænka okkar sem á von á fyrsta barni sínu var líka varafyrirliði Anniku Sörenstam í De Moines Golf and Country Club í Iowa árið 2017.
Pettersen hefir sigrað í 21 móti þar af 2 risamótum: the 2007 McDonald’s LPGA Championship og the 2013 Evian Championship. Hún hefir auk þess tvívegis verið í 2. sæti heimslistans og er fyrrverandi nýliði ársins á LET og hefir náð að vera nr. 1 á stigalista LET.
Pettersen sagði m.a. við þetta tækifæri: „Þetta er gríðarlegur heiður að fá að aðstoða Beany sem fyrirliða í 2019 Solheim Cup í Gleneagles.“
Imrie spilaði í Solheim Cup 1996 á St Pierre Hotel í Wales og vann 1 ½ stig fyrir Evrópu, með sigri í fjórboltanum með Anniku Sörenstam og eins halaði hún inn hálfu stigi í fjórmenningi ásamt Liselotte Neumann. Imrie lék einnig í Solheim Cup 1994 á The Greenbrier í West Virginia og segir að ferlagið til Washington DC í Concord vél ásamt evrópska liðinu hafi verið einn af hápunktum ferils síns. Hin 51-árs gamla frá Dundee, Skotlandi, sigraði 1995 á Jamie Farr Toledo Classic á LPGA, hefir einnig tekið þátt í 7 öðrum Solheim Cup mótum sem aðstoðarmaður undir fyrirliðunum Catrin Nilsmark, Helen Alfredsson, Alison Nicholas, Liselotte Neumann, Carin Koch og Annika Sörenstam.
Imrie sem spilaði sem áhugamaður í Skotlandi var í liði Breta&Íra í Curtis Cup 1990 í Somerset Hills Country Club í New Jersey ásamt Matthew. Þær eru góðar vinkonur síðan þá og frá dögum þeirra á túrnum saman.
Imrie sagði m.a. : „Ég hlakka til og mér er gríðarlegur heiður af því að fá að vera annar varafyrirliði Beany. Ég sé hlutverk mitt sem varafyrirliða nákvæmlega sem það sem varafyrirliðar eiga að vera þ.e. að styðja fyrirliðann. Sem einn af nánustu vinum hennar verður auðvelt að starfa með henni og gefa álit og tillögur um allar hliðar fyrirliðastarfs hennar.„
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
