Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2018 | 21:00

Íslandsbankamótaröðin (4): Kristófer Orri Íslandsmeistari 19-21 árs pilta í holukeppni

Íslandsmótið í holukeppni hjá unglingunum fór fram á Jaðarsvelli sl. helgi.

Í flokki 19-21 árs pilta varð Kristófer Orri Þórðarson, GKG Íslandsmeistari í holukeppni.

Hann hafði betur gegn heimamanninum Kristjáni Benedikt Sveinssyni, GA, í úrslitaviðureigninni 2&0.

Í 3. sæti varð Tumi Kúld, GA.

Sjá má skema með öllum viðureignunum frá 8 manna úrslitum til úrslitaviðureignarinnar hér að neðan: