Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2018 | 18:00

PGA: Merritt sigraði á Barbasol

Það var Troy Merritt sem sigraði á Barbasol meistaramótinu, sem var mót vikunnar á PGA Tour.

Lokaskor Merritt var 23 undir pari, 265 högg (62 67 69 67).

Í 2. sæti, einu höggi á eftir þ.e. á 22 undir pari urðu 3 bandarískir kylfingar: Tom Lovelady, Richy Werensky og Billy Horschel.

Troy Merritt átti frábæran örn, á par-4 8. holunni, sem leiðir í keppni um högg vikunnar  og sjá má með því að SMELLA HÉR: 

Til þess að sjá lokastöðuna á Barbasol SMELLIÐ HÉR: