Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 4. 2018 | 18:00

LET Access: Guðrún Brá á +4 á Spáni e. 1. dag

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK tekur þátt í mótinu vikunnar á LET Access, Ribeira Sacra Patrimonio de la Humanidad International Ladies Open 2018.

Mótið fer fram  á Augas Santas Balneario & Golf Resort, í Lugo á Spáni, dagana 4.-6. júlí 2018 og lýkur því á föstudaginn.

Guðrún Brá lék 1. hring á 4 yfir pari, 74 höggum.

Efstu kylfingar í mótinu eftir 1. dag eru þær Eun Jung Ji Kim frá Spáni og Johanna Gustavson frá Svíþjóð en þær léku 1. hring á -6, þ.e. 64 höggum!

Niðurskurðarlína var áætluð eftir 1. dag að vera í kringum 2 yfir pari.

Til þess að sjá stöðuna á Ribeira Sacra Patrimonio de la Humanidad Int. Ladies Open SMELLIÐ HÉR: