Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 25. 2018 | 18:00

Hver er kylfingurinn: Nasa Hataoka?

Sigurvegari móts vikunnar á LPGA, Walmart mótinu, er kylfingurinn Nasa Hataoka, sem er frá Ibaraki í Japan.

Hún er nánast óþekkt, en vakti athygli á sér fyrir að sigrað á síðasta úrtökumóti fyrir LPGA.

Hver er kylfingurinn kunna sumir að spyrja?

Nasa Hataoka er fædd 13. janúar 1999 og var því 19 ára, 5 mánaða og 11 daga þegar hún sigraði á fyrsta LPGA móti sínu.

Hataoka gerðist atvinnumaður í golfi 2016/2017, en á því tímabili var einnig nýliðaár hennar á LPGA.

Með sigri sínum á Walmart mótinu verður er Hataoka fyrsti nýliðinn sem sigrar á LPGA móti á þessu keppnistímabili, sem gefur henni m.a. góðan sjéns á að verða valin nýliði ársins.

Með sigrinum fer hún m.a. úr 24. sæti stigalista LPGA í 8. sætið og er komin með 1273 stig.

Með 1. sigrinum á LPGA vann þessi 19 ára japanska stelpa sér inn $ 300.000 (þ.e. u.þ.b. 30 milljónir íslenskra króna).

Hún hefir þar með unnið sér inn u.þ.b. 64 milljónir íslenskra króna og um 68 milljónir íslenskra króna á öllum ferli sínum.

Hataoka hefir spilað í 13 mótum og 11 sinnum náð niðurskruði, hefir unnið sér inn um 64 milljónir íslenskra króna og er þegar búin að landa fyrsta sigrinum og hefir þar að auki orðið 4 sinnum meðal efstu 10. Glæsilegur árangur það!

Besti árangur Hataoka fram að þessum sigri var T-2 árangur á 2018 Kingsmill Championship presented by GEICO.

Hataoka er fyrsti japanski kvenkylfingurinn sem sigrar á LPGA frá því að Haru Nomura sigraði í fyrra, 2017, á Volunteers of America Texas Shootout.

Nú þegar á þessu keppnistímabili hafa kylfingar frá 8 mismunandi löndum sigrað á LPGA: Kórea (5 sigrar), Bandríkin (4 sigrar), Thaíland (3 sigrar), Ástralía (1 sigur), Kanada (1 sigur), Japan (1 sigur), Nýja Sjáland (1 sigur) og Svíþjóð (1 sigur).

Hataoka er nr. 2 í Team Japan sem keppa mun á 2018 2018 UL International Crown.

Með sigrinum er Hataoka líka búin að tryggja sér sæti á  2019 Diamond Resorts Tournament of Champions!