Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 21. 2018 | 11:00

GA: DEMODAGUR í dag!

Í dag fimmtudaginn 21. júní 2018 og á morgun föstudaginn 22. júní verður hægt að koma í Klappir og prófa það nýjasta í kylfum frá framleiðendunum PING og Titleist.

Á staðnum verður sérfræðingur frá ÍsAm sem getur gefið góð ráð við val á útbúnaði.

Hægt verður að prófa karla- og kvennakylfur frá PING, m.a. heitustu trékylfurnar í dag G400 og nýju G700 járnin.

Vault 2.0 og Sigma G pútterlínurnar frá PING verða til sýnis ásamt Glide 2.0 fleygjárnunum.

Í Titleist verður í boði að prófa 718 línuna af járnum, 917 trékylfurnar og nýju SM7 fleygjárnin.

Einnig verða á staðnum nýja Scotty Cameron Select pútterlínan.

Demodagurinn verður í gangi á þessum tímum:

Fimmtudagurinn 21. júní frá 15-19

Föstudagurinn 22. júní frá 12-14