Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 20. 2018 | 08:45

Úrslit í púttmóti Harðar Barðdal 2018

Minningarmót Harðar Barðdal fór fram á mánudaginn 18. júní sl. í Hraunkoti, Hafnarfirði.

Þetta púttmót hefur öðlast fastan sess en það er GSFÍ sem stendur að undirbúningi og framkvæmd mótsins.

Verðlaun voru veitt í flokki fatlaðra og ófatlaðra og einnig afhentur framfarabikar GSFÍ.

Verðlaunapeningar voru gefnir af Pétri H Hansen í Marko Merki sem einnig hannaði merki GSFÍ.

Á meðfylgjandi mynd má sjá verðlaunahafa í báðum flokkum ásamt Ólafi Ragnarssyni og Frans Sigurðssyni frá GSFÍ:
Elín Fanney Ólafsdóttir varð púttmeistari í flokki fatlaðra  á minningarmóti Harðar Barðdal 2018.

Í ōðru sæti var Einar Jónsson og Ásmundur Asmundsson í þriðja sæti.

Sigurður Guðmundsson hlaut framfarabikar GSFÍ 2018 en hann hefur lækkað sig úr um 13 í forgjöf síðan í vor, kominn með 20.

Í flokki ófatlaðra sigraði Kristinn Sōrensen, annar var Sigtryggur Brynjarsson og þriðji Jón Ben, faðir Einars.

Til hamingju öll!!!

Mynd: Verðlaunahafar í púttmóti Harðar Barðdal 2018