Stelpugolf í dag!
Stelpugolfdagurinn 2018 fer fram í dag, sunnudaginn 10. júní milli kl. 14:00 og 17:00 á æfingasvæði Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar líkt og undanfarin ár.
Stelpugolf var fyrst haldið árið 2014 af golfkennaranemum Golfkennaraskóla PGA og síðan þá hefur gífurlegur fjöldi lagt leið sína á völlinn og sótt sér kennslu.
PGA á Íslandi og Golfsamband Íslands halda uppteknum hætti en í ár mun tífaldur risameistari og einn sigursælasti kylfingur heims, Annika Sörenstam frá Svíþjóð, halda sýnikennslu í Stelpugolfi.
„Við erum sérstaklega spennt fyrir Stelpugolfi í ár enda ekki oft sem Íslendingum gefst kostur á að fá golfkennslu frá einum allra besta kylfingi sögunnar. Við hvetjum alla áhugasama að taka þátt í þessum skemmtilega degi með okkur,” segir Ólafur Björn Loftsson, framkvæmdastjóri PGA á Íslandi.
Markmið viðburðarins er að auka þátttöku kvenkylfinga á öllum aldri og auka fjölskylduímynd golfíþróttarinnar. Þó eru að sjálfsögðu allir af báðum kynjum velkomnir á Stelpugolf. Gestir sem mæta fá tækifæri til að fara í gegnum mismunandi stöðvar á æfingasvæði GKG þar sem PGA golfkennarar verða til staðar að leiðbeina. Boðið verður upp á skemmtilegar þrautir og leiki ásamt kennslu í hinum ýmsu þáttum leiksins. Kylfur verða á staðnum fyrir þá sem vantar, það er engin nauðsyn að vera allan tímann og vel mögulegt að koma í styttri tíma sem og lengri.
Stelpugolfdagurinn er samvinnuverkefni PGA á Íslandi, GSÍ, GKG, Icelandair Cargo, ÍSAM og Vodafone.
Ítarlegri upplýsingar um Stelpugolf gefur Ólafur Björn Loftsson, framkvæmdastjóri PGA á Íslandi, s. 691-2489 og olafur@pga.is
Einnig má finna upplýsingar um viðburðinn á facebook.com/stelpugolf og allar upplýsingar um heimsókn Anniku á facebook.com/AnnikaIceland
Stelpugolf er einn stærsti viðburður ársins í golfhreyfingunni. Það má því búast við metfjölda sunnudaginn 10. júní í GKG – þar sem, Annika Sörenstam, ein stærsta íþróttastjarna allra tíma mun mæta á svæðið.
Viðburðurinn fer fram hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Hann er opinn öllum og ókeypis. Við biðlum til ykkar að aðstoða okkur við að láta fólk vita af Stelpugolfi í aðdraganda viðburðarins sem og að mæta á sunnudaginn og verða vitni að einstökum degi.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
