Gísli Sveinbergsson, GK. Mynd: gsimyndir.net
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2018 | 17:00

Gísli náði einn íslensku keppandanna niðurskurði á St. Andrews Links Trophy

Gísli Sveinbergsson, GK var sá eini af íslensku keppendunum þremur, sem náði niðurskurði á St. Andrews Links Trophy.

Þrír íslenskir kylfingar þeir Aron Snær Júlíusson, GKG; Bjarki Pétursson, GB og Gísli Sveinbergsson, GK, hófu keppni í gær á  St. Andrews Links Trophy, en mótið fer fram í vöggu golfsins á St. Andrews, dagana 8.-10. júní 2018.

Leikinn var New Course (par-71) fyrri daginn og Old Course (par-72) síðari daginn.

Gísli lék annan hringinn á Old Course á 1 yfir pari, 73 höggum og var því samtals á 1 undir pari, 142 höggum (69 73).

Bjarki stórbætti leik sinn á 2. hring, lék á frábærum 3 undir pari 69 höggum, en það dugði því miður ekki til. Hann náði ekki niðurskurði.

Einungis 40 efstu og þeir sem jafnir voru í 40. sætinu komust gegnum niðurskurð og var Bjarki T-62 eftir 2. dag, en hann fór upp um heil 51 sæti frá 1. degi, sem eyðilagði fyrir honum keppnina en þá lék Bjarki New Course á 5 yfir pari, 76 höggum og var því samtals á 2 yfir pari, 145 höggum (76 69). Aðeins þeir sem léku á samtals pari eða betur náðu niðurskurði.

Aroni Snæ gekk ekki vel á Old Course í dag, lék hann á 5 yfir pari 77 höggum og var því samtals á 6 yfir pari, 149 höggum  (72 77) og úr leik.

Frá því að St. Andrews Links Trophy hóf göngu sína 1989, hafa ávallt bestu áhugamenn heims tekið þátt í því – menn sem síðar hafa náð frama á golfsviðinu – menn á borð við  Ernie Els, Lee Westwood, Trevor Immelman, Geoff Ogilvy, Padraig Harrington, Justin Rose og Rory McIlroy.