Rúnar Arnórsson, GK. Mynd: GSÍ
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 6. 2018 | 22:00

Rúnar í 9. sæti á sterku móti á Írlandi

Þrír kylfingar úr Keili kepptu á East of Ireland Amateur Open meistaramótinu. Mótiðv ar tvískipt en keppt er í undir 21 árs flokki – samhliða mótinu sem er fyrir alla aldurshópa.

Rúnar Arnórsson náði frábærum árangri og lék á -8 undir pari. Hann lék hringina fjóra á (70-70-71-69). Rúnar endaði í 9. sæti en leiknar voru 36 holur á lokahringnum.

Henning Darri Þórðarson lék á +2 samtals og komst ekki í gegnum niðurskurðinn í almenna flokknum. Hann lék á +2 samtals (75-71).

Vikar Jónasson er úr leik en hann lék á +8 samtals (77-75) og komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

Sjá má lokastöðuna á East of Ireland Amateur Open með því að SMELLA HÉR:

Texti og mynd: GSÍ