Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 31. 2018 | 08:00

LPGA: Ólafía fer út kl. 17:42 í dag á US Women´s Open risamótinu!!!

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir fer út kl. 12:42 að staðartíma í Shoal Creek í Alabama (sem er kl. 17:42 hjá okkur hér á Íslandi, sem erum 5 tímum á undan).

Ólafía er í ráshóp með þeim Minami Hiruta frá Japan og sænska áhugamanninum Linn Grant.

Sem stendur er Ólafía Þórunn í 116. sæti stigalistans og væri frábært ef hún kæmist gegnum niðurskurð í þessu sterka móti, en það myndi aftur færa hana nær topp-100, sem hún þarf að vera í til þess að halda spilaréttindum sínum.

US Women´s Open risamótið er 12. mótið sem Ólafía Þórunn tekur þátt í á þessu keppnistímabili á LPGA.

Fylgjast má með gengi Ólafíu Þórunnar á skortöflu með því að SMELLA HÉR: