Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 27. 2018 | 04:00

PGA: Rose enn efstur f. lokahringinn á Fort Worth Inv.

Enski kylfingurinn Justin Rose er enn í forystu eftir 54 holu spil á Fort Worth Invitational, móti vikunnar á PGA tour.

Samtals hefir Rose spilað á 14 undir pari, 196 höggum (66 64 66).

Hann á 4 högg á þá sem deila 2. sæti, þá Emiliano Grillo og Brooks Koepka, sem báðir eru á 10 undir pari, hvor.

Til þess að sjá stöðuna á Fort Worth Inv. SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Fort Worth Inv. SMELLIÐ HÉR: