Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Mynd: golf.is Nordic Golf League: 3 íslenskir kylfingar úr leik á Master of the Monster
Þrír íslenskir atvinnukylfingar: Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Andri Þór Björnsson og Haraldur Franklín Magnús tóku þátt í móti á Nordic Golf League mótaröðinni, sem nefnist Master of the Monster.
Fyrirkomulag mótsins var óhefðbundið að því leyti að 72 kylfingar hófu holukeppni og 36 komu áfram næsta dag og spiluðu holukeppni að nýju.
Þeir 18 sem uppi stóðu hófu þá 6 riðla 3 manna úrslátta höggleikskeppni og komust bara 6 efstu áfram, sem spila til úrslita á morgun í hefðbundinni höggleikskeppni.
Andri Þór og Haraldur Franklín féllu úr keppni eftir 72 manna holukeppnina en Guðmundur Ágúst stóð einn eftir af Íslendingunum í 18 manna hópnum, en féll úr leik í 18 manna höggleikshlutanum. Allir 3 íslensku kylfingarnir eru því úr leik á Master of the Monster Match Play.
Til þess að sjá stöðuna í Master of the Monster SMELLIÐ HÉR:
Þess mætti geta að Master of the Monster fór fram á velli rétt hjá Hamborg þ.e. Green Eagle golfvellinum í Winsen, Luhe.
Sjá má eldri umfjöllun Golf 1 um Green Eagle golfvöllinn í Winsen Þýskalandi með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
