Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 30. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Elín Guðmunds- dóttir og Ólöf Agnes Arnardóttir- 30. apríl 2018

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir Elín Guðmundsdóttir og Ólöf Agnes Arnardóttir.

Elín er fædd 30. apríl 1958 og á því 60 ára merkisafmæli í dag!

Komast má á facebook síðu Elínar til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Elín Guðmundsdóttir  – Innilega til hamingju með 60 ára merkisafmælið!!!

Hinn afmæliskylfingurinn er Ólöf Agnes Arnardóttir. Ólöf Agnes er fædd 30. apríl 1998 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Ólöf Agnes er í Golfklúbbnum Oddi. Hún spilaði í fyrsta sinn í meistaraflokk í meistaramóti GO 2017 og náði þar þeim glæsilega árangri að landa 3. sætinu. Flottur kylfingur hún Ólöf Agnes!!!

Ólöf Agnes Arnardóttir – Innilega til hamingju með 20 ára afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ingvar Hólm Traustason 30. apríl 1954 (64 ára); Voga Handverk (57 ára); Lopapeysur Og Ullarvörur (38 ára) Sophia Sheridan, 30. apríl 1984 (34 ára) Sjá eldri afmælisgrein um Sheridan með því að SMELLA HÉR: ; Daði Laxdal Gautason, NK, 30. apríl 1994 (24 ára);  ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is