Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR and LPGA
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 18. 2018 | 08:00

LPGA: Ólafía Þórunn hefur keppni á morgun í LA

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir spilar næst á Hugel-JTBC mótinu á LPGA mótaröðinni.

Mótið fer fram í Los Angeles og hefst það á morgun 19. apríl.

Mótið er 72 holur og er niðurskurður eftir 2. keppnisdag.

Mótið er það sjöunda hjá Ólafíu Þórunni á þessu ári.

Hún hefur komist í gegnum niðurskurðinn á tveimur mótum af alls sex til þessa.

Besti árangur hennar er 26. sæti á fyrsta mótinu á Bahamas.

Hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn á síðasta móti sem fram fór á Hawaii.

Texti: GSÍ