Masters 2018: Reed leiðir e. 2. dag
Bandaríski kylfingurinn Patrick Reed leiðir eftir 2. dag Masters risamótsins.
Reed átti glæsilegan 2. hring upp á 6 undir pari, 66 högg.
Samtals er Reed búinn að spila á 9 undir pari, 135 höggum (69 66).
Reed á 2 högg á Ástralann Marc Leishman, sem er í 2. sæti á samtals 7 undir pari, 137 höggum (70 67).
Einn í 3. sæti er svo Henrik Stenson á 5 undir pari og þeir Jordan Spieth og Rory McIlroy deila 4. sætinu á 4 undir pari, hvor. Justin Thomas og Dustin Johnson eru síðan T-6 báðir á samtals 3 undir pari.
Tiger Woods og Phil Mickelson komust báðir í gegnum niðurskurð; Tiger er T-40 á 4 yfir pari og Phil Mickelson er T-46 á 5 yfir pari. Niðurskurður var einmitt miðaður við 5 yfir par eða betra og einn af þeim 8 lukkunar pamfílum sem rétt sluppu gegnum niðurskurð var Ian Poulter, sem rétt náði inn í mótið á síðustu metrunum með sigri á Houston Open. Flott hjá Poulter!!!
Aðeins einn áhugamaður komst í gegnum niðurskurð Doug Ghim frá Bandaríkjunum og því ljóst að hann hlýtur áhugamannaverðlaunin.
Til þess að sjá stöðuna á Masters risamótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
