Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2018 | 21:00

LPGA: Ólafía á 68 á 3. degi Kia

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir er að gera frábæra hluti á Kia Classic mótinu.

Í gær komst hún í gegnum niðurskurð, lék 2. hringinn á 1 undir pari og var á sléttu pari fyrir 3. hringinn.

Í dag á 3. hring lék hún á 68 glæsihöggum!!! Frábært hjá Ólafíu Þórunni!!!

Samtals er Ólafía Þórunn því á 4 undir pari, 212 höggum (73 71 68).

Á glæsihringnum í dag fékk Ólafía Þórunn hvorki fleiri né færri en 8 fugla, en því miður líka 4 skolla.

Ólafía Þórunn er T-35, þ.e. deilir 35. sætinu með 4 frábærum kylfingum Solehim Cup stjörnunni Charley Hull, hinni kanadísku Brooke Henderson, Ayako Uehara frá Japan og Angelu Stanford frá Bandaríkjunum.

Þrír kylfingar eru efstir og jafnir Eun Hee Ji og In Kyung Kim frá S-Kóreu og hin bandaríska Lizette Salas, allar á samtals 11 undir pari, hver.

Til þess að sjá stöðuna á Kia Classic SMELLIÐ HÉR: