LPGA: Lokaholurnar léku Ólafíu grátt!
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR og á LPGA komst ekki í gegnum niðurskurð á Bank of Hope mótinu.
Reyndar var Ólafía nokkuð langt frá því að komast gegnum niðurskurð en hún var samtals á 6 yfir pari, 150 höggum (74 76).
Niðurskurður miðaðist við 1 undir pari eða betra.
Á hringnum í gær fékk Ólafía 2 fugla og 2 skolla, en skramba á lokaholurnar tvær, par-3 17. holuna og par-4 18.holuna.
Það má því segja að lokaholunar hafi leikið Ólafíu grátt í þessu móti, en á fyrri hring fékk hún líka skramba á 18. holuna.
Hún á því harma að hefna þarna á næsta ári 🙂
Þetta er í 2. skiptið í röð sem Ólafía kemst ekki gegnum niðurskurð, en áður náði hún ekki niðurskurði í Ástralíu á ISPS Handa Women´s Australia Open.
Hins vegar hefir Ólafía það sem af er árs komist tvívegis í gegnum niðurskurð þ.e. á 1. LPGA mótinu Pure Silk Bahamas þar sem hún varð T-26 og á LET mótinu í Bonville, Ástralíu T-14.
Næsta mót Ólafíu Þórunnar er Kia Classic í Carlsbad, Kaliforníu, en mótið stendur dagana 22.-25. mars 2018.
Sjá má stöðuna á Bank of Hope mótinu með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
