Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2018 | 09:30

Suzann Pettersen barnshafandi

LPGA.com staðfesti eftir hádegi í gær, 16. mars 2018,  að „norska frænka okkar“ Suzann Petterson sé barnshafandi.

Golfweek var með frétt þess efnis, en LPGA.com staðfesti fréttina ekki fyrr eiginmaður Petterson, Christian Ringvold hafði staðfest gleðitíðindin.

Petterson hefir ekkert spilað á LPGA Tour á þessu keppnistímabili.

Síðasta mót sem hún tók þátt í var 2017 CME Group Tour Championship.

Suzann hefir sigrað 15 sinnum á LPGA og er sem stendur í 36. sæti á Rolex heimslistanum.

Þetta verður fyrsta barn Suzann, sem verður 37 ára, 7. apríl n.k.

Suzann kynnti kærasta sinn Christian til sögunnar á blaðamannafundi í Kína 2014 og þau giftust í janúar 2017.

Sjá má nokkrar myndir af brúðkaupi Christian og Suzann, sem fram fór í Holmenkollen kapellunni í Osló og svo líka eina af þeim á heimili þeirra: