Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 27. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jessica Korda —– 27. febrúar 2018

Afmæliskylfingur dagsins er bandarísk/tékkneski kylfingurinn Jessica Korda. Jessica er fædd 27. febrúar 1993 og á því 25 ára afmæli í dag!!!

Jessica komst í fyrst golffréttirnar í febrúar 2012 þegar hún vann sinn fyrsta sigur á LPGA: Women´s Australian Open, þegar hún stóð sig best í 6 kvenkylfinga umspili.

Jessica er dóttir tennisspilaranna Petr Korda og Regina Rajchrtová. Petr Korda vann m.a. Grand Slam í einliðaleik Australian Open 1998, þannig að Ástralía hefir reynst þeim feðginum góð!

En Jessica hefir verið í fréttum mun nýlegar; en hún sigraði nú um helgina, 25. febrúar 2018 í Honda LPGA Thailand mótinu, en það 5. sigur hennar á LPGA.

Áður hefir Jessic einnig sigrað í Pure Silk Bahamas LPGA Classic mótinu 2014 og sama ár Airbus LPGA Classic; síðan vann Jessica líka Sime Darby LPGA Malaysia, 11. október 2015.

Jessica á sama afmælisdag og kólombíski LPGA kylfingurinn Mariajo Uribe, en hún á 28 ára afmæli í dag, þ.e. er fædd 27. febrúar 1990.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Daðey Einarsdottir (58 ára); Sigmundur Guðmundsson (54 ára); Jóhann Björn Elíasson (47 ára); Jóhann Island Elíasson (47 ára); Gunnar Hallberg (45 ára); Dóra Birgis Art (40 ára STÓRAFMÆLI!!!); Húfur Sem Hjálpa (44 ára); DóraBirgis Myndlistakona Og Áhugaljósmyndari (40 ára STÓRAFMÆLI!!!); Föt Til Sölu (37 ára); Auður Björt Skúladóttir (27 ára) … og …

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is