Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 26. 2018 | 18:00

Nordic Golf League: Guðmundur Ágúst endaði T-12 og Andri Þór T-32 á Lumine

Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR) náði bestum árangri þeirra fjögurra íslenskra kylfinga sem tóku þátt á Lakes Open mótinu á Spáni. Mótið fór fram á Lumine golfstaðnum oger hluti af Nordic Tour atvinnumótaröðinni sem er í þriðja styrkleikaflokki mótaraða í Evrópu.

Guðmundur Ágúst lék hringina þrjá á 7 höggum undir pari (69-72-66) 207 högg og skilaði það honum því að hann varð jafn 3 öðrum kylfingum í 12. sæti. Andri Þór Björnsson (GR) endaði jafn 8 öðrum í 32. sæti á pari vallar samtals (72-71-71). Haraldur Franklín Magnús (GR) og Axel Bóasson (GK) tóku einnig þátt en þeir komust ekki í gegnum niðurskurðinn og voru því ekki á meðal 45 efstu.

Axel varð stigameistari á þessari mótaröð í fyrra og tryggði sér þar með keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni sem er næst sterkasta mótaröð Evrópu. Keppni á Áskorendamótaröðinni hefst í mars.

Sjá má lokastöðuna á mótinu með því að SMELLA HÉR: 

Næsta mót hjá þessum fjórum kylfingum hefst þann 1. mars og er það einnig hluti af vetrarmótaröð Nordic Tour á Spáni. Mótið heitir Hills Open og er það leikið á Lumine svæðinu.

Texti: GSÍ