LET: Valdís Þóra hlaut 13.356,- og Ólafía Þórunn 4.118,- ástralska dollara í verðlaun
Valdís Þóra „okkar“ Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL og Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir hlutu báðar sigurtékka fyrir frábæran árangur sinn á Ladies Classic Bonville mótinu.
Valdís Þóra hlaut 13.356,66 ástralska dollara (u.þ.b. 1.1 milljón íslenskra króna) og Ólafía Þórunn 4.118,31 ástralska dollara (u.þ.b. 340.000 íslenskar krónur).
Hér er efni í aðra grein hversu óréttlátt það er að verðlaunafé kvenkylfinga sé ekki jafnhátt og á karlkylfinga mótaröðunum – En vel af sér vikið Ólafía Þórunn og Valdís Þóra!!!
Fyrir vikið er Valdís Þóra í 6. sæti stigalista LET og með áframhaldandi góðu gengi tryggir hún sér áframhaldandi keppnisrétt á LET.
Þetta er í 2. sinn sem tveir íslenskir kvenkylfingar spila samtímis í móti á bestu mótaröð Evrópu, LET.
Ekki aðeins komust þær báðar í gegnum niðurskurð af 143 þátttakendum, sem hófu keppni og komu sér þannig í þann 71 kvenkylfinga hóp sem lék um helgina – sem er stórkostlegt í sjálfu sér, heldur voru þær í topp-15.
Hversu frábært er þetta? Að tveir kylfingar frá litla Íslandi komist báðir í gegnum niðurskurð – allir keppendurnir frá Íslandi og nái síðan báðir að vera meðal efstu 15?
Já, við getum svo sannarlega verið stolt af þeim Valdísi Þóru og Ólafíu Þórunni!!!
Í aðalfréttaglugga: Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
