Marita Engzelius
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 25. 2018 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2018: Marita Engzelius (20/25)

Golf 1 mun nú kynna þær stúlkur sem hlutu fullan keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna, en lokaúrtökumótið fór fram í Marokkó í 16.-20. desember 2017.

Leiknir voru 5 hringir og voru stúlkurnar 60 að þessu sinni sem kepptu um kortið sitt, þ.á.m. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK.

Það voru 25 efstu stúlkurnar sem komust á LET og baráttan í ár var hörð.

T.a.m. voru 6 stúlkur jafnar í 24. sætinu á samtals 4 undir pari, 356 höggum og varð að koma til bráðabana milli þeirra því aðeins tvö sæti voru í boði þ.e. það 24. og 25.

Það voru tvær norskar stúlkur sem sigruðu í bráðabananum þ.e. þær Celine Borge og Madeleine Stavnar (báðar með örn á par-5 18. holuna þar sem úrslitin réðust).

Þær 4, sem sátu eftir með sárt ennið voru hin spænska Maria Palacios Siegenthaler; Julie Aime frá Frakklandi; Kiran Matharu frá Englandi og Tiia Koivisto frá Finnlandi.

Þessar tvær heppnu stúlkur, sem unnu í bráðabanaum um 24. og 25. sætin hafa nú verið kynntar og eins stúlkurnar 5 sem urðu í 19.sæti en það eru Ariane Provot frá Frakklandi; Katja Pogacar frá Slóveníu; Ainil Bakar frá Bandaríkjunum; Sideri Vanova frá Tékklandi og Lucrezia Colombotto Rosso frá Ítalíu. Eins hafa þrjár stúlkur sem urðu í 16. sæti á samtals 6 undir pari, 354 höggum verið kynntar: Elia Folch frá Spáni; Cloe Frankish frá Englandi og Sanna Nuutinen frá Finnandi. Næst voru þær sem deildu 14. sætinu kynntar: Mireia Prat og Piti Martinez Bernal, en báðar léku þær á samtals 7 undir pari, 353 höggum. Fimm stúlkur deildu 9. sætinu, en það eru: Julía Engström og Cajsa Persson frá Svíþjóð; Vikki Laing frá Skotlandi; Laura Sedda frá Ítalíu og Elína Nummenpää frá Finnlandi. Þær léku allar á samtals 8 undir pari, 352 höggum.

Golf 1 er byrjað að kynna þær 3 sem deildu 6. sætinu, en það eru: Jeanette Marita Engzelius frá Noregi; Nína Pegova frá Rússlandi og Silvia Bañon frá Spáni, en þær léku allar á 9 undir pari, 351 höggi.

Nina og Silvía hafa þegar verið kynntar og aðeins eftir að kynna „norsku frænku okkar“ Marítu Engzelius .

Jeanette Marita Engzelius fæddist 9. febrúar 1988 og er því 30 ára.

Marita byrjaði að spila golf 13 ára og er í Golfklúbbi Osló.

Hún var við nám og spilaði í bandaríska háskólagolfinu fyrir University of Tulsa og spilaði í öllum 33 mótum liðsins þau 4 ár sem hún var í skólanum.

Hún vann ORU Shootout og átti 4 aðra topp 10 árangra.

Marita er í golflandsliði Noregs og hefir átt sæti í því frá árinu 2006.

Hún er norskur meistari í höggleik 2007 og 2010 og besti hringur hennar til dagsins í dag er upp á 64 högg.

E.t.v. leitt að vera að rifja það upp hér en Maríta tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA árið 2012.  Þar var hún meðal þeirra óheppnustu en hún  var í 9. sæti fyrir lokahringinn og þar með með kortið sitt hársbreidd frá því að vera tryggt, en hrundi niður skortöfluna með skori upp á 75 lokahringinn og varð í 24. sæti 1 höggi frá því að tryggja sér fullan þátttökurétt – 1 höggi frá fullum keppnisrétti og korti á LPGA.  Fyrir vikið hlaut hún aðeins takmörkuð keppnisréttindi á LPGA keppnistímabilið 2013.

Nú er Maríta hins vegar með full kortið sitt og full keppnisréttindi á LET 2018.