Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 24. 2018 | 09:00

Nordic Golf League: 4 íslenskir kylfingar v/keppni á Lumine

Það eru 4 íslenskir kylfingar sem eru við keppni á móti á Lumine golfstaðnum á Spáni; en þetta eru þeir Andri Þór Björnsson, GR; Axel Bóasson, GK; Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og Haraldur Franklín Magnús, GR.

Mótið, sem ber heitið Lakes Open er hluti af SGT Winter Series 2018 á Nordic Golf League mótaröðinni.

Mótið stendur 24.-26. febrúar 2018. Lumine golfstaðurinn er nálægt borgunum Cambril og Tarragona, um 105 km frá Barcelona á Costa Dorada.

Leikið er á 2 völlum Lumine: Hills vellinum (sem er par-72) og Lakes vellinum (sem er par-71).

Til þess að fylgjast með gengi íslensku keppendanna á Lumine SMELLIÐ HÉR: 

Mynd í aðalfréttaglugga: Frá Hills vellinum á Lumine golfstaðnum á Spáni