Jamie Lovemark
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2018 | 23:00

PGA: List og Lovemark leiða í hálfleik á Honda Classic – Hápunktar 2. dags

Það eru þeir Luke List og Jamie Lovemark frá Bandaríkjunum sem leiða á Honda Classic, sem fram fer í Palm Beach Gardens í Flórída og er mót vikunnar á PGA Tour.

Þeir List og Lovemark eru báðir á samtals 3 undir pari, 137 höggum; List (71 66) og Lovemark (68 69).

List og Lovemark eru ekki meðal þekktustu kylfinga PGA Tour og má sjá eldri kynningar Golf 1 á þeim með því að SMELLA HÉR LUKE LIST og SMELLA HÉR LOVEMARK

Tiger Woods er meðal þátttakanda og T-14 á samtals 1 yfir pari, 141 höggi (70 71).

Meðal þess markverðasta á 2. hring er að sá sem á titil að verja í mótinu, Rickie Fowler, komst ekki í gegnum niðurskurð.

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Honda Classic SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá stöðuna á Honda Classic SMELLIÐ HÉR:  

Á mynd í aðalfréttaglugga: Jamie Lovemark