LET: Vonbrigða byrjun hjá Ólafíu Þórunn í Bonville
LPGA-kylfingurinn, Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, tekur þátt í LET móti, að þessu sinni, Ladies Classic Bonville, sem fram fer í Bonville, í New South Wales ,í Ástralíu.
Hún átti vonbrigða byrjun, lék 1. hring á óvenju háu skori 8 yfir pari, 80 höggum.
Á hringnum fékk Ólafía 5 skolla 1 fjórfaldan skolla (lék par-4 13 holuna á snjókerlingu (8)) en tók þetta allt saman aftur með fugli á par-3 17. holuna (hennar eina fugli á hringnum).
Ólafía Þórunn er í 121. sæti af 144 þátttakendum og verður að eiga kraftaverkahring í dag til þess að koma sér í gegnum niðurskurð.
Gengur betur næst!!! 🙂
Í efsta sæti er enski kylfingurinn Holly Clyburn, en hún lék 1. hring í Bonville á glæsilegum 5 undir pari, 67 höggum!
Til þess að sjá stöðuna að öðru leyti í Ladies Classic Bonville mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
