Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2018: Anders Hansen (28/33)
Það voru 33 kylfingar sem tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í gegnum lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór dagana 11.-16. nóvember sl. á Lumine golfstaðnum á Spáni.
Það voru 25 efstu og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu, sem tryggðu sér keppnisrétt.
Nú nýlega voru kynntir þeir sem deildu 12. sætinu á samtals 16 undir pari en það voru: Pep Angles og Gonzalo Fernandez-Castaño frá Spáni og Laurie Canter frá Englandi. Síðan voru þeir 3 kynntir sem deildu 9. sætinu, sem léku á 17 undir pari, hver en það voru þeir Josh Geary, frá Ástralíu; Mark Foster frá Englandi og Connor Syme frá Skotlandi. Síðast var sá kynntur sem var einn í 8. sætinu á samtals 18 undir pari, en það var Svíinn Kristoffer Broberg.
Sex „strákar“ deildu með sér 2. sætinu en það voru: Jacques Kruyswijk frá S-Afríku, Andrea Pavan, Ítalíu; Pontus Videgren, Svíþjóð; Anders Hansen og Jeff Winther,frá Danmörku og Charlie Ford, Englandi, en þeir léku allir á samtals 19 undir pari, hver.
Andrea Pavan hefir þegar verið kynntur og í dag er það Anders Hansen.
Anders Hansen fæddist 16. september 1970 í Sønderborg, Danmörku og er því 47 ára.
Hann er 1,83 m á hæð og 77 kg.
Hansen var sá elsti sem komst gegnum Q-school Evróputúrsins að þessu sinni.
Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1995 þ.e. fyrir 23 árum síðan.
Það tók Hansen nokkur ár að festast í sessi á Evróputúrnum og hann komst ekki meðal 116 efstu fyrr en 1999 (þ.e. það eru þeir 116 og ofar sem sjálfkrafa halda kortinu sínu og spilaréttindum).
Fyrsta sigur sinn af 3 vann Hansen 2002 á Volvo PGA Championship og hann vr meðal efstu 60 eftir það á stigalistanum öll ár frá 2002 – 2012, besti árangurinn á því tímabili var 7. sætið 2011.
Hansen hefir komist meðal efstu 25 á heimslistanum og er þar með hæst rankaði danski kylfingurinn.
Hansen var fulltrúi Danmerkur í heimsbikarnum (ens. WGC-World Cup) árin 1999, 2002, 2003, 2004, 2005 og 2007.
Hansen átti 6 topp 10 árið 2006 þ.á.m náði hann 3. sætinu á Dubai Desert Classic og spilaði síðustu tvo dagana með þeim Tiger Woods og Retief Goosen, og eins varð hann í 2. sæti á Opna ítalska 2. árið í röð, það ár.
Hansen komst á PGA Tour keppnistímabilið 2007, en náði ekki að endurnýja spilaréttindi sín eftir tímabilið.
Annar sigur Hansen á Evróputúrnum kom 2007 þegar hann sigraði á BMW PGA Championship, sama mótinu og hann náði fyrsta sigri sínum á, 5 árum áður. Þriðji Evróputúrs sigur Hansen kom 2009 á Joburg Open, í S-Afríku. Hann náði frábærum lokahring upp á 66 högg og sigraði; átti 1 högg á Andrew McLardy. Mánuði síðar sigraði hann í 2. sinn á Sólskinstúrnum, þegar hann sigraði á Vodacom Championship and eftir þennan góða endi á árinu var hann efstur á stigalista Evrópumótaraðarinnar, Order of Merit árið 2009.
Hansen náði bestum árangri í heimsmóti í mars 2011, þegar hann varð T-3 á WGC-Cadillac Championship, 3 höggum á eftir sigurvegaranum Nick Watney. Sama ár (2011) náði hann líka besta árangri sínum í risamóti þegar hann varð í 3. sæti á PGA Championship.
Hansen settist í helgan stein 2015 (eftir 20 ára atvinnumennsku), en spilaði enn í nokkrum mótum 2016. Hann gat síðan ekki hætt og sneri aftur í Q-school og nældi sér aftur í kortið sitt fyrir 2018 keppnistímabilið!
Sem stendur er Hansen nr. 679 á heimslistanum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
