LPGA: Ólafía Þórunn farin út á ISPS Handa mótinu – Fylgist með HÉR!
Ólafía Þórunn Kristínsdóttir, atvinnukylfingur úr GR er farin út á móti vikunnar á LPGA – ISPS Handa Women´s Australian Open, en mótið fer fram á keppnisvelli Kooyonga golfklúbbsins í Adelaide, Ástralíu.
Hún átti rástíma kl. 8:06 að staðartíma í Adelaide (kl. 22:36 að íslenskum tíma).
Eftir 2 spilaðar holur er Ólafía Þórunn á parinu. Hún er í ráshóp með þeim Angelu Stanford (Stanford er fædd 28. nóvember 1977 og er því 40 ára og hefir sigrað á 5 LPGA mótum og 1 Symetra Tour móti) og Cydney Clanton (Sjá eldri kynningu Golf 1 á Clanton með því að SMELLA HÉR: ).
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL, fer síðan út kl. 13.29 að staðartíma (sem er kl. 4:09 að íslenskum tíma). Hún ávann sér þátttökurétt í LPGA mótinu, með glæsispilamennsku í úrtökumóti fyrir mótið nú fyrr í vikunni. Í ráshóp með Valdísi Þóru eru thaílenski kylfingurinn Saranporn Langkulgasettri og Paulu Reto frá S-Afríku (sjá má kynningu Golf 1 á Reto frá því fyrr í dag – en Reto varð í 3. sæti á Q-school sl. desember)
Til þess að fylgjast með stöðunni á ISPS Handa Women´s Australian Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
