Nýju stúlkurnar á LET 2018: Sanna Nuutinen (8/25)
Golf 1 mun nú kynna þær stúlkur sem hlutu fullan keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna, en lokaúrtökumótið fór fram í Marokkó í 16.-20. desember 2017.
Leiknir voru 5 hringir og voru stúlkurnar 60 að þessu sinni sem kepptu um kortið sitt, þ.á.m. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK.
Það voru 25 efstu stúlkurnar sem komust á LET og baráttan í ár var hörð.
T.a.m. voru 6 stúlkur jafnar í 24. sætinu á samtals 4 undir pari, 356 höggum og varð að koma til bráðabana milli þeirra því aðeins tvö sæti voru í boði þ.e. það 24. og 25.
Það voru tvær norskar stúlkur sem sigruðu í bráðabananum þ.e. þær Celine Borge og Madeleine Stavnar (báðar með örn á par-5 18. holuna þar sem úrslitin réðust).
Þær 4, sem sátu eftir með sárt ennið voru hin spænska Maria Palacios Siegenthaler; Julie Aime frá Frakklandi; Kiran Matharu frá Englandi og Tiia Koivisto frá Finnlandi.
Þessar tvær heppnu stúlkur, sem unnu í bráðabanaum um 24. og 25. sætin hafa nú verið kynntar og eins stúlkurnar 5 sem urðu í 19.sæti en það eru Ariane Provot frá Frakklandi; Katja Pogacar frá Slóveníu; Ainil Bakar frá Bandaríkjunum; Sideri Vanova frá Tékklandi og Lucrezia Colombotto Rosso frá Ítalíu.
Í dag verður byrjað að kynna stúlkurnar 3 sem urðu í 16. sæti: Eliu Folch frá Spáni; Cloe Frankish frá Englandi og Sönnu Nuutinen frá Finnandi. Allar léku þessar stúlkur á samtals 6 undir pari, 354 höggum. Byrjað verður á finnsku „frænku“ kokkar Nuutinen.
Sanna Nuutinen fæddist í Helsinki, Finnlandi, 8. apríl 1991 og er því 26 ára. Hún byrjaði í golfinu með foreldrum sínum, 6 ára.
Sanna var í bandaríska háskólagolfinu þar sem hún spilaði með liði Texas Christian University. Hún útskrifaðist þaðan 2014 með gráðu í sálfræði.
Sanna gerðist atvinnumaður í golfi útskriftarárið sitt í háskólanum, 1. ágúst 2014.
Árið 2016 vann Nuutinen fyrsta mót sitt á LET Access en það var NordicTrack Open de Strasbourg á Golf de Strasbourg,
Sjá má viðtal við Sönnu sem tekið var 2016 með því að SMELLA HÉR:
Þegar sanna er ekki í golfi þá finnst henni gaman að vera í ræktinni og hefir sérlegan áhuga á lyfingum. Hún hefir einnig áhuga á að horfa á íshokkí.
Heima í Finnlandi er Sanna í Keimola Golf.
Fylgjast má með Sönnu á félagsmiðlunum: TWITTER: @SANNANUUTINEN INSTAGRAM: @SANNA_UUTINEN
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
