Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2018 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2018: Connor Syme (23/33)

Það voru 33 kylfingar sem tryggðu sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í gegnum lokaúrtökumót Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór dagana 11.-16. nóvember sl. á Lumine golfstaðnum á Spáni.

Það voru 25 efstu og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu, sem tryggðu sér keppnisrétt.

Nú nýlega voru kynntir þeir sem deildu 12. sætinu á samtals 16 undir pari en það voru: Pep Angles og Gonzalo Fernandez-Castaño frá Spáni og Laurie Canter frá Englandi.

Í dag verður hafist handa við að kynna þá 3 sem deildu 9. sætinu, en þeir léku allir á 17 undir pari; en þetta eru þeir  Josh Geary, frá Ástralíu; Mark Foster frá Englandi og Connor Syme frá Skotlandi.

Connor Syme fæddist í Kirkaldy, Skotlandi 11. júlí 1995 og er því 22 ára. Hann veit það ekki en hann á sama afmælisdag og Ísak Jasonarson, GK (upp á ár) og Ella María Gunnarsdóttir, GL.

Meðal hápunkta Syme sem áhugamanns er að hann sigraði árið 2016 á Australian Amateur championship. Hann var líka í 1. sæti  2016 á Amateur Championship í Royal Porthcawl and Pyle and Kenfig Golf Club, þar sem hann átti skollalausan 2. hring upp á 68 högg.  Syme var sá Skoti sem ávann liði sínu flest stig þegar Skotlandi varð titil sinn í European Team Championship. Hann var einnig í liði Skotlands í Eisenhower Trophy. Eins var hann í liði Breta&Íra í sigursælu liði sem tókst að vinna St Andrews Trophy.

Árið 2017 tók Syme  m.a. þátt í Walkers Cup, en eftir það gerðist hann atvinnumaður í golfi. Þá var hann í 8. sæti á heimslista áhugamanna í golfi.

Heima í Skotlandi er Syme meðlimur í  Drumoig Golf Centre í Fife. Þjálfari Syme er pabbi hans sem einnig spilaði á sokkabandsárum sínum með liðum  Skotlands, Bretlands og Írlands.

Síðan Syme gerðist atvinnumaður á síðasta ári (2017) hefir hann skrifað upp á samning við umboðsskrifstofuna Modest Golf Management. Hann lék í sínu fyrsta móti sem atvinnumaður á Portugal Masters þar sem hann varð T-12.  Allir hringir hans voru undir pari og hann var aðeins með 3 skolla í mótinu.

Degi fyrir 2. atvinnumót sitt, Alfred Dunhill Links Championship,  gerði Syme samning við Adidas um að vera í golfskóm frá þeim.